Sanna Magdalena Mörtudóttir – fjárhagslegir hagsmunir
Fjárhagslega hagsmuni skal skrá samkvæmt töluliðum 1-5 hér á eftir. Athugið að ekki skal skrá fjárhæð eða verðgildi þeirra þátta sem tilgreindir eru í 1.-5. tölulið. Heimilt er að fella brott upplýsingar sem skráðar eru undir 2. tölulið þegar fjögur ár eru liðin frá upprunalegri skráningu.
Fjárhagslegir hagsmunir
1. Launuð störf og tekjumyndandi starfsemi
a) Launuð stjórnarseta í opinberum eða einkareknum félögum
Nafn félags | Staða |
---|---|
b) Launað starf eða verkefni (annað en launað starf sem borgarfulltrúi)
Starfsheiti | Nafn vinnuveitanda eða verkkaupa |
---|---|
Stök verkefni | Stelpur rokka! |
Stakt verkefni | Íslandsdeild Amnesty International |
c) Starfsemi sem er unnin samhliða starfi borgarfulltrúa og er tekjumyndandi fyrir hann eða félag sem hann á sjálfur eða er meðeigandi í
Tegund starfsemi |
---|
2. Fjárhagslegur stuðningur, gjafir, utanlandsferðir og eftirgjöf eftirstöðva skulda
a) Fjárframlög eða annar fjárhagslegur stuðningur frá innlendum og erlendum lögaðilum og einstaklingum, þ. á m. stuðningur í formi skrifstofuaðstöðu eða hliðstæðrar þjónustu, sem fellur utan þess stuðnings sem Reykjavíkurborg eða flokkur borgarfulltrúa lætur í té, og verðgildi stuðnings nemur meira en 50 þ.kr. á ári. Enn fremur skal skráður fjárhagslegur stuðningur í formi afsláttar af markaðsverði og annars konar ívilnunar að verðmæti meira en 50 þ.kr. sem ætla má að sé veittur vegna setu í borgarstjórn
Eðli stuðnings | Hver veitir |
---|---|
b) Gjöf frá innlendum og erlendum lögaðilum og einstaklingum þegar áætla verður verðmæti hennar yfir 50 þ.kr. og að gjöfin sé veitt vegna stöðu kjörins fulltrúa hjá Reykjavíkurborg
Nafn félags | Staða | Hvers kyns gjöf | Hvenær látin í té |
---|---|---|---|
c) Ferðir og heimsóknir innan lands og utan sem geta tengst setu í borgarstjórn og útgjöldin eru ekki að öllu leyti greidd af Reykjavíkurborg, stjórnmálasamtökum borgarfulltrúans eða af borgarfulltrúanum sjálfum
Hver stóð undir útgjöldum ferðar | Tímabil ferðar | Áfangastaðir |
---|---|---|
d) Eftirgjöf eftirstöðva skuldar og ívilnandi breytingar á skilmálum samnings við lánardrottin
Nafn lánardrottins | Eðli samnings |
---|---|
Netgíró | samningur um afslátt |
Aktiva | samningur um afslátt |
3. Eignir
a) Fasteign sem er að einum þriðja eða meira í eigu borgarfulltrúa eða félags sem hann á fjórðungs hlut í eða meira, annað en húsnæði til eigin nota fyrir borgarfulltrúa og fjölskyldu hans og lóðaréttindi undir slíkt húsnæði
Heiti landareignar | Staðsetning fasteignar |
---|---|
b) Heiti félags eða sparisjóðs í atvinnurekstri, sem borgarfulltrúi á hlut í og fer yfir einhver eftirtalinna viðmiða:
- Verðmæti hlutar nemur að markaðsvirði meira en einni miljón króna miðað við 31. desember ár hvert
- Hlutur nemur 1% eða meira í félagi, sparisjóði eða sjálfseignarstofnun þar sem eignir í árslok eru 230 m.kr. eða meira eða rekstrartekjur 460 m.kr. eða meira
- Hlutur nemur 25% eða meira af hlutafé eða stofnfé félags, sparisjóðs eða sjálfseignarstofnunar
Heiti félags eða sparisjóðs |
---|
c) Sjálfseignarstofnun í atvinnurekstri, sbr. 3. gr. laga nr. 33/1999 um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur, sem kjörinn fulltrúi á hlut í og fer yfir einhver þeirra viðmiða sem talin eru upp í b-lið
Heiti sjálfseignarstofnunar |
---|
Við mat á því hvort skrá skuli fjárhagslega hagsmuni borgarfulltrúa í félagi sem hann á sjálfur eða er meðeigandi í skal miða við skilgreiningu á raunverulegum eiganda sbr. ákvæði laga um skráningu raunverulegra eigenda nr. 82/2019.
4. Skuldir
Skrá skal skuldir, sjálfskuldarábyrgðir og aðrar ábyrgðir, sem tengdar eru rekstri fasteignar eða atvinnurekstri félaga, sparisjóða eða sjálfseignarstofnana, sbr. 3. tölulið. Ekki skal skrá fjárhæðir skuldar eða skuldir eða ábyrgðir sem stofnað er til í öðrum tilgangi, svo sem vegna kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota eða bifreið til eigin nota, námslán eða annarra ráðstafana sem ekki tengjast atvinnurekstri.
Tegund skuldar | Skuld |
---|---|
5. Samkomulag við fyrrverandi eða verðandi vinnuveitanda
a) Samkomulag við fyrrverandi vinnuveitanda sem er fjárhagslegs eðlis, þar á meðal samkomulag um orlof, launalaust leyfi, áframhaldandi launagreiðslur eða fríðindi, lífeyrisréttindi og ámóta meðan setið er í borgarstjórn
Gerð samkomulags | Nafn vinnuveitanda |
---|---|
b) Samkomulag við framtíðarvinnuveitanda um ráðningu, óháð því að ráðningin taki fyrst gildi eftir að borgarfulltrúi hverfur úr borgarstjórn
Gerð samkomulags | Nafn vinnuveitanda |
---|---|
6. Trúnaðarstörf utan borgarstjórnar
Skráðar skulu upplýsingar um stjórnarsetu og önnur trúnaðarstörf fyrir hagsmunasamtök, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félög önnur en stjórnmálaflokka óháð því hvort þessi störf eru launuð
Nafn félags/hagsmunasamtaka/stofnunar/ heiti sveitarfélags | Eðli trúnaðarstarfs |
---|---|
Framkvæmdastjórn Sósíalistaflokks Íslands | varaformaður |
Pepp Ísland – samtök fólks í fátækt | stök verkefni |
Alþýðufélagið | varamaður |