Um Dóru

Dóra Björt Guðjónsdóttir er fædd í Reykjavík á kvenréttindadaginn 19. júní 1988.

Menntun

2017- MA í alþjóðasamskiptum, Háskóli Íslands
2013-2016 BA í alþjóðafræði, Universitetet i Oslo og Freie Universität Berlin
2009-2012 BA í heimspeki, Universitetet i Oslo
2004-2008 Stúdentspróf af náttúrufræðibraut, Menntaskólinn við Hamrahlíð

Starfsferill

2018- Borgarfulltrúi
2018 Aðstoðarkona fyrir fatlaðan mann (hlutastarf)
2010-2017 Leiðsögukona á Árbæjarsafni, Sumarhöllinni Oscarshall hjá Norsku konungshöllinni og fyrir Ibsensafnið í Osló
2017 Samskiptastarfsnemi, Skrifstofa Evrópuþingmannsins Julia Reda á Evrópuþinginu í Brussel í Belgíu
2015-2016 Framkvæmdastjóri, Stúdentaþing Oslóarháskóla
2012-2013 Grunnskólakennsla í Grefens skole, Osló
2009-2010 Leikskólastarfsmaður, Törtberg Kanvas barnehage í Osló
2008-2009 Hópstjóri, leikskólinn Laufásborg
2008 Leikari í Götuleikhúsi Hins hússins
2003-2013 Ýmis hluta- og sumarstörf meðfram námi

Félagsstörf

2017-2018 Stjórnarmeðlimur og stofnmeðlimur, Solaris – hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi
2016-2017 Formaður ungra Pírata
2016 Gjaldkeri í aðalstjórn Norska Stúdentasamfélagsins (Det Norske Studentersamfund), Osló
2014-2015 Ritstjórnarmeðlimur og meðlimur í afmælishátíðarnefnd og viðburðanefnd, norska femínistablaðið Fett
2012-2014 Stofnandi og formaður, Feminisisk forum, femínistafélag Oslóarstúdenta
2010-2012 Meðlimur í nemendastjórn heimspekideildarinnar í UiO, Osló