Frá vegferð til veruleika
Ársskýrsla þjónustu- og nýsköpunarsviðs 2025
Menningar- og íþróttasvið
Menningar- og íþróttasvið gegnir mikilvægu hlutverki í að efla og auðga mannlíf Reykjavíkur. Sviðið ber ábyrgð á rekstri menningarstofnana og íþróttamannvirkja borgarinnar, styður við öflugt grasrótarstarf á sviði lista, íþrótta og barnamenningar og kemur að fjölbreyttum viðburðum og hátíðum sem lífga upp á borgina allt árið um kring.
Reykjavíkurkortið – stafrænt borgarkort
Á árinu 2025 var útboði lokið vegna innleiðingar stafræns borgarkorts fyrir Reykjavíkurborg. Fyrirtækið PassCreator varð samstarfsaðili borgarinnar að loknu útboðsferli.
Með nýju stafrænu borgarkorti geta íbúar nálgast aðgangskort að þjónustu menningar- og íþróttasviðs beint í farsíma sínum, svo sem fyrir sundlaugar og söfn borgarinnar. Lausnin svarar skýru ákalli notenda um einfaldari og aðgengilegri þjónustu. Reykjavíkurkortið er jafnframt sveigjanlegt og gerir hverjum notanda kleift að velja hvaða þjónustur eru virkar á kortinu hverju sinni. Innleiðing verkefnisins heldur áfram á árinu 2026.
Öryggi og rekstur myndavélakerfa
Hafin var vinna við uppbyggingu miðlægs eftirlitskerfis fyrir allar eftirlitsmyndavélar á sundstöðum Reykjavíkurborgar.
Markmiðið er að einfalda rekstur, eftirlit og þjónustu myndavélakerfa með miðlægri stjórnun og þar með auka hagkvæmni í rekstri.
Samhliða verkefninu voru netþjónar á sundstöðum uppfærðir, sem styrkti rekstraröryggi og bætti upplýsingaöryggi til muna.
Vefverkefni og efnismiðlun
Áfram var unnið að einföldun og samþættingu vefumhverfis borgarinnar. Eldri sérvefum var lokað og efni þeirra flutt yfir á reykjavik.is í samstarfi við vefdeild og skrifstofu þjónustuumbreytingar. Markmiðið er að bæta aðgengi að upplýsingum og tryggja samræmda upplifun notenda á vefsvæðum borgarinnar.
Nýr vefur Borgarbókasafns Reykjavíkur
Á árinu var unnið að nýjum vef Borgarbókasafns Reykjavíkur. Markmið verkefnisins er að skapa öfluga og notendavæna stafræna miðju fyrir lánþega þar sem safnkostur, þjónusta, viðburðir og fjölbreytt menningarstarf safnsins verður aðgengilegt á einum stað.
Gert er ráð fyrir að nýr vefur opni á fyrri hluta árs 2026.
Ný og betri fristund.is
Verulegur áfangi náðist í þróun fristund.is, sem fór í loftið í apríl 2025. Vefurinn sameinar upplýsingar um frístundastarf barna og fjölskyldna á einum stað og byggir á sjálfvirkri gagnasöfnun úr mörgum upplýsingakerfum.
Með innleiðingu nýju lausnarinnar var eldri vefur leystur af hólmi og komið á sjálfvirkara og skilvirkara umhverfi sem dregur úr tvíverknaði og tryggir áreiðanlegri upplýsingar. Á árinu hófust jafnframt samtöl um mögulega þátttöku annarra sveitarfélaga í verkefninu. Eftir opnun vefsins tók skóla- og frístundasvið við vörustýringu í samstarfi við menningar- og íþróttasvið.
Mannlíf á reykjavik.is
Skrifstofa menningar- og íþróttasviðs tók virkan þátt í þróunarverkefninu Mannlíf á reykjavik.is.
Markmið verkefnisins er að færa vef borgarinnar á næsta stig með nýjum virkniþáttum og framsetningu efnis sem tengist lifandi mannlífi borgarinnar.
Verkefnið byggir á þeirri hönnunarvinnu sem unnin hafði verið á fyrra ári og stuðlar að auknum sýnileika þjónustu og starfsemi sviðsins á sameiginlegum vef Reykjavíkurborgar.
Samþætting vefsvæða og bókunarkerfa
Vefsvæðin gufunesbaer.is og hladan.is voru færð undir reykjavik.is á árinu. Samhliða því var innleidd bókunarþjónusta í gegnum Microsoft Bookings fyrir þjónustu Hlöðunnar sem einfaldar umsýslu og bætir aðgengi notenda að þjónustunni.
Aukið samstarf um rekstur og þjónustu
Samstarf upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar og starfsfólks menningar- og íþróttasviðs um rekstur og þjónustu festist enn frekar í sessi á árinu. Með markvissari samstarfsháttum hefur tekist að styrkja tæknilega þjónustu við Borgarbókasafn Reykjavíkur og styðja betur við rekstur opinna bókasafna um alla borg.