Auglýsing starfsleyfa
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur auglýsir móttöku umsókna um starfsleyfi, tillögu að starfsleyfi og útgáfu starfsleyfa fyrir mengandi starfsemi.
Auglýsingar
Eftirfarandi eru mótteknar umsóknir um starfsleyfi, tillögur að starfsleyfi og útgefin starfsleyfi.
Auglýsingar vegna starfsleyfa
Auglýsa þarf tillögu að starfsleyfi í í fjórar vikur á vefsvæði Heilbrigðiseftirlitsins. Á auglýsingatíma má hver sem vill senda efnislegar athugasemdir við tillöguna á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.
Í auglýsingu er birt tillaga að starfsleyfisskilyrðum og fylgigögn eins og við á hverju sinni. Á meðan á auglýsingatíma stendur má hver sem vill koma með athugasemdir við tillöguna. Athugasemdir óskast sendar skriflega á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is eða til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur tekur ákvörðun um útgáfu starfsleyfis innan fjögurra vikna frá því að frestur til að gera athugasemdir við tillögu rennur út. Umsækjandi og þeir sem gerðu athugasemdir geta krafist rökstuðnings fyrir ákvörðuninni en einnig er heimilt að kæra ákvörðun um útgáfu starfsleyfis til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Hvað viltu skoða næst?
- Mótteknar umsóknir um starfsleyfi Listi yfir umsóknir um starfsleyfi fyrir mengandi starfsemi.
- Starfsleyfi, tillögur í auglýsingu og útgefin leyfi Listi yfir tillögur að starfsleyfi fyrir mengandi starfsemi.
- Niðurrif á húsnæði og asbesti Starfsleyfi fyrir niðurrif á húsnæði og asbesti
- Skráningarskyld starfsemi Listi yfir staðfestar skráningar