Aðstaða á Ylströndinni

Á Ylströndinni er fjölbreytt aðstaða fyrir gesti sem vilja njóta sjávar, útiveru og slökunar.

  • Heitur pottur við hús er 37°c - 39°c 
  • Eimbað
  • Heitur pottur i flæðamáli, 30°c - 36°c (á sumrin)
  • Útisturtur (á sumrin)
  • Ylströndin sandurinn
  • Strandblak (á sumrin)
  • Búningsklefar
  • Sérklefi

Aðgengi

Við Ylströndina eru fjögur merkt bílastæði fyrir fatlaða. 

 

Hjólastólaaðgengi er frá bílastæðum og inn í þjónustuhúsið. 

 

Salerni fyrir fatlaða eru í báðum búningsklefum og aðgengi er inn í sturtur.

 

Ekki er hjólastólaaðgengi inn í gufuna né sérstakur búnaður til að komast ofan í heitu pottana.

Mynd af heita pottinum í Nauthólsvík.

Reglur á Ylströndinni

Við viljum að öllum líði vel á Ylströndinni. Gestir eru beðnir um að sýna öðrum tillitssemi, ganga vel um svæðið og fylgja gildandi reglum.

Börn og ábyrgð

  • Börnum yngri en 10 ára er óheimill aðgangur nema í fylgd með syndum einstaklingi, 15 ára eða eldri.
  • Engin barnagæsla er á Ylströndinni.
  • Foreldrar og forráðamenn bera ábyrgð á börnum sem eru í þeirra umsjá.
  • Gestir eru á eigin ábyrgð.

Öryggi, umgengni og aðstaða

  • Þvoið ykkur án sundfata áður en farið er í heitu pottana.
  • Dýfingar í heitu pottana eru bannaðar.
  • Lög um ölvun á almannafæri gilda á Ylströndinni; áberandi ölvuðum einstaklingum er vísað af ströndinni.
  • Fólki undir áhrifum áfengis og vímuefna er óheimill aðgangur.
  • Notkun myndavéla og síma er stranglega bönnuð í búningsklefum. Notkun verður kærð til lögreglu.
  • Ylströndin ber ekki ábyrgð á eigum gesta. Notið verðmætageymslur.
  • Á opnunartíma er gæsla á Ylströndinni. Gæslusvæði Ylstrandarinnar er innan grjótgarðs.
  • Vegna mikillar slysahættu er öll umferð sundfólks bönnuð um bryggju og flotbryggjur Siglunes.
  • Óheimilt er að fara um borð í báta Siglunes sem liggja við legufæri í Nauthólsvík.
  • Vinsamlega sýnið öðrum gestum tillitssemi.

Reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum

 

Borgarbúa við leik í Nauthólsvík

Hópar eru velkomnir!

Hópar frá skólum, frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum eru velkomnir á Ylströndina. 

Vinsamlega athugið að fyrir börn 6-10 ára þarf einn starfsmann á hver átt börn.

Hópar sem eru stærri en 10 geta ekki geymt fatnað inni í búningsklefum.

Bókanir
Hægt er að leigja gasgrill í afgreiðslu Ylstrandarinnar.
Leiga á grillinu eru 10.000 kr. fyrir 30 mínútur.
Hægt er að taka frá blakvöllinn á Ylströndinni í 1 klst. í senn.
Það kostar ekkert að nota völlinn.

Hafa samband

Ylströndin
Nauthólsvík
105 Reykjavík
411 5330
ylstrond@reykjavik.is
Ylströndin á Facebook

 

Strætóleiðir 5 og 8 stoppa hjá Háskólanum í Reykjavík (HR)