Ylströndin
Sjósund
Sjósund er spennandi og krefjandi leið til að njóta náttúrunnar. Á Ylströndinni er góð aðstaða fyrir sjósund allt árið um kring. Mikilvægt er að kynna sér aðstæður og gæta eigin öryggis.
Athugið að starfsfólk Ylstrandar getur ekki með nokkru móti tryggt öryggi gesta í sjónum.
Lofthiti
–
Vindhraði
–
Sjávarhiti
2,9°C
20. nóv. kl. 11:00
Áður en farið er í sjóinn
- Syntu ekki ein(n).
- Kynntu þér aðstæður, t.d. strandlengju, sjólag, sjávarhita, sjávarföll, vindstyrk og vindátt áður en þú ferð í sjóinn.
- Vertu búin(n) að borða áður en þú ferð í sjóinn.
- Notaðu sundhettu eða húfu í áberandi lit.
- Farðu rólega ofan í sjóinn og gefðu líkamanum tíma til að venjast kuldanum.
- Ekki byrja að synda fyrr en þú andar eðlilega.
- Syntu helst í dagsbirtu svo þú sért sýnileg(ur). Ef um kvöldsund er að ræða er mikilvægt að vera nálægt landi.
Meðan á sjósundi stendur
- Syntu ekki ein(n) og hugsaðu um eigið öryggi.
- Vertu nálægt landi og syntu meðfram ströndinni af öryggisástæðum. Straumar geta verið við sjávarreið.
- Andaðu rólega.
- Fylgist hvert með öðru. Talist reglulega við til að fylgjast með líðan og meðvitund.
- Aldrei synda undir ísinn.
- Óvanir ættu að vera skamma stund í sjónum í fyrstu og vera aðeins með vönu sjósundsfólki.
- Þú deilir sjónum með öðrum vatnasportsiðkendum.
- Hætta á ofkælingu og örmögnun er mikil. Ekki taka áhættu — þú þarft að komast til baka á eigin spýtur.
- Hlustaðu á skilaboð líkamans. Við ofkælingu leitið til starfsmanna Ylstrandar eða hringið í Neyðarlínuna 112.
Eftir sjósund
- Þurrkaðu þér vel áður en þú klæðir þig í fötin.
- Drekktu vatn.
- Borðaðu eitthvað næringarríkt.
- Klæddu þig í hlý föt áður en þú ferð heim.
- Köld húð er auðsærð og þess vegan er rétt að gæta varúðar þegar komið er úr sjónum.
Gott að vita
Staðbundnar aðstæður
- Í Nauthólsvík og á Fossvogi er bátaumferð sem er hættuleg sundfólki.
- Sundfólk er vinsamlega beðið um að synda nálægt landi og ekki synda nálægt bátaumferð eins og við bryggju og flotbryggjur Sigluness.
- Byrjendum í sjósundi og sjóbaði er ráðlagt að vera stutta stund í einu í sjónum á meðan líkaminn er að aðlagast kuldanum.
- Sjávarhittinn í Nauthólsvík er mældur í efsta lagi sjávarins á 15-30 cm dýpi.
- Í júlí og ágúst er sjórinn heitastur og getur sjávarihti farið í +15°C.
- Í desember, janúar og febrúar er sjórinn kaldastur og getur sjávarhiti farið í -2°C. Í mars byrjar sjórinn að hlýna aftur.
Hafa samband
Ylströndin
Nauthólsvík
105 Reykjavík
411 5330
ylstrond@reykjavik.is
Ylströndin á Facebook
Strætóleiðir 5 og 8 stoppa hjá Háskólanum í Reykjavík (HR)