Ylströndin í Nauthólsvík er einstök útivistarperla í Reykjavík þar sem hægt er að njóta sjávar, sólar og slökunar allt árið um kring.

Á Ylströndinni er að finna heita potta, baðaðstöðu og góða aðstöðu fyrir sjósund. Á sumrin bætast við sandströnd og ylvolgt sjávarlón þar sem hægt er að njóta góðra stunda við sjóinn.

Lofthiti

–

Vindhraði

–

Sjávarhiti

2,9°C

20. nóv. kl. 11:00

Fólk að liðka sig fyrir sjósund í Nauthólsvík í vetrarsól.

Afgreiðslutímar

Vetraropnun 19. ágúst – 14. maí

  • Mánudagur - Lokað
  • Þriðjudagur kl. 11:00–19:00
  • Miðvikudagur kl. 11:00–19:00
  • Fimmtudagur kl. 11:00–19:00
  • Föstudagur kl. 11:00–19:00
  • Laugardagur kl. 11:00–16:00
  • Sunnudagur - Lokað
Borgarbúa við leik í Nauthólsvík

Hvað kostar á Ylströndina?

Stakt gjald

  • Fullorðnir - 1.500 kr.
  • Börn 0–9 ára í fylgd forráðamanna - Frítt
  • Börn 10–17 ára* - 400 kr.
  • Handhafar TR örorkuskírteinis - Frítt
Mynd af heita pottinum í Nauthólsvík.

Aðgengi og sérklefi

Við viljum að öllum líði vel í á Ylströndinni. Þess vegna er lögð áhersla á gott aðgengi, fjölbreytta aðstöðu og möguleika fyrir ólíkar þarfir. Hér er yfirlit um aðgengi, aðstöðu og sérklefa.

Ylströndin Nauthólsvík

Öryggis- og umgengnisreglur

Við viljum að öllum líði vel á Ylströndinni. Gestir eru beðnir um að sýna öðrum tillitssemi, ganga vel um svæðið og fylgja gildandi reglum.

Saga Nauthólsvíkur

Nauthólsvík á sér langa og fjölbreytta sögu sem endurspeglar breytta lífshætti og útivistarmenningu Reykvíkinga.

Víkin liggur við rætur Öskjuhlíðar og hefur í gegnum tíðina gegnt ólíkum hlutverkum, allt frá búskap og hernaðarumsvifum til þess að verða vinsæll bað- og útivistarstaður.

Hafa samband

Ylströndin 
Nauthólsvík
102 Reykjavík
411 5330
ylstrond@reykjavik.is
Ylströndin á Facebook

Strætóleiðir 5 og 8 stoppa hjá Háskólanum í Reykjavík (HR)