Vika6 - fræðslumyndbönd

Í tilefni Viku6 hefur Jafnréttisskólinn staðið fyrir gerð fræðslumola á myndbandaformi í samstarfi við UngRÚV sem fjalla um kynlíf og kynvitund ungs fólks út frá ólíkum sjónarhornum. Myndböndin eru birt á heimasíðu UngRÚV og hér á síðu Jafnréttisskólans. Myndböndin er til dæmis hægt að nota sem kveikjur að umræðum í kennslutímum.  

Vika 6 - Kynferðisleg hegðun

Kynlíf er allskonar og fólk er allskonar. Kynferðisleg saga og upplifun hvers og eins er mismunandi og einstök. Öll eiga að rétt á að vera eins og þau vilja og fikra sig áfram á eigin forsendum. Hér má sjá fjölbreyttan hóp fólks svara óundirbúnum spurningum um kynlíf. 

Fram koma: Embla Guðrúnar-Ágústsdóttir, Þorsteinn V. Einarsson, Mars M Proppé,  Killian G. E. Briansson, Yrsa Ósk Finnbogadóttir, Patrekur Jaime, Sigríður Klingenberg , Ágúst Beinteinn Árnason (Gústi B), Bergrún Íris Sævarsdóttir, Ólafur Jóhann Steinsson, Sólborg Guðbrandsdóttir, Brynja Dan, Eva Ruza, Sigríður Hermannsdóttir

 

Vika6 2022 - Kynlíf og menning

Árið 2022 voru gerð fjögur stutt myndbrot sem fjalla um höfnun, hvað er sexý og hvernig þú getur orðið góður elskhugi. 

Um leik og lestur sá Eva Halldóra Guðmundsdóttir og Mixtúra sá um upptökur. 

Vika6 2021 - Kynlíf

Hér má finna stutt fræðslumyndbönd þar sem starfsfólk félagsmiðstöðva í Reykjavík ræðir saman um ýmsa þætti sem snúa að kynlífi og kynheilbrigði. Spurningar sem teknar eru fyrir í myndbrotunum eru: 

1.Hvað er kynlíf?

2. Hvenær ertu tilbúinn til að byrja að stunda kynlíf og hvernig veistu það?

3. Hvað þýðir að kynlífi fylgi ábyrgð?

4. Af hverju er sjálfsfróun mikilvæg?

5. Hvaða ráð höfum við til fólks áður en það byrjað að stunda kynlíf?

6. Af hverju er klám ekki góð kynfræðsla?

Vika6 2020 - Kynlíf og tilfinningar

Fimm þátta sería þar sem Kolbrún Hrund, verkefnastýra Jafnréttisskólans fræðir okkur um kynlíf og kynvitund.