16364 Skautasvell á Ingólfstorgi. Markaðskönnun

Reykjavíkurborg óskar eftir áhugasömum aðilum til að setja upp og reka skautasvell á Ingólfstorgi frá 28. nóvember 2026 til 3. janúar 2027. Gert er ráð fyrir að gerður verði sérleyfissamningur um verkefnið á grundvelli innsendra gagna. Samningurinn tekur til uppsetningar, reksturs, niðurtöku og frágangs.

Markaðskönnunin verður eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 17:00 þann 21. október 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Gögnum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 12:00 þann 26. október 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda