16359 Rekstur hleðslustöðva í bílahúsum. Sérleyfissamningur
F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Rekstur hleðslustöðva í bílahúsum. Sérleyfissamningur, EES útboð nr. 16359
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Bílastæðasjóður Reykjavíkur óskar eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í útboði á sérleyfi til reksturs hleðsluþjónustu fyrir rafbíla í sex bílastæðahúsum Bílastæðasjóðs Reykjavíkur. Í sérleyfinu felst rekstur, viðhald og endurnýjun núverandi hleðslustöðva, þjónusta við notendur, gjaldtaka fyrir hleðslu, stöðuupplýsingar um hleðslustæði fyrir bílastæðaeftirlit og gagnaskil til sérleyfisveitanda. Um er að ræða samtals um 92 AC hleðslustæði.
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 13:00 þann 9. nóvember 2026.
Hægt er að breyta tungumáli vefsíðunnar með því að velja "Íslenska" í flettiglugganum neðst til vinstri. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 10. desember 2026.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda