16348 Rammasamningur um ferskt grænmeti og ávexti, EES.
Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar óskar eftir aðilum til þátttöku í útboði um rammasamning um ferskt grænmeti og ávexti fyrir Reykjavíkurborg
Rammasamningur um ferskt grænmeti og ávexti, EES útboð nr. 16348.
Almennt um verkið:
Útboðinu er skipt í eftirfarandi hluta:
Hluti 1: Ferskt grænmeti og ávextir.
Hluti 2: Lífrænt ræktað grænmeti og ávextir.
Ekki er ljóst hvaða magn verður keypt á grundvelli þessar útboðs, þar sem rammasamningar eru gerðir um tiltekna vöru eða þjónustu í tiltekinn tíma, án þess að magntölur séu þekktar.
Rammasamningurinn felur ekki í sér loforð um viðskipti. Áætluð innkaup innan samnings eru talin um 140-170 milljónir kr. án vsk. á ársgrundvelli.
Um er að ræða rammasamning sem byggir á lögum um opinber innkaup nr. 120/2016. Gildistími samnings er fjögur ár frá því að samningur kemst á en eigi fyrr en núverandi samningur rennur út sem er 12. desember 2026.
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 14:00, þann 24. september 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 27. október 2026.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda