16344 Laugasól - Niðurrifgerð
F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Laugasól - Niðurrifgerð, útboð nr. 16344.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í niðurrifi Laugasól - Laugaborg við Leirulæk 6, 105 Reykjavík. Rífa skal alla bygginguna og farga úrgangi með tilheyrandi hætti. Núverandi hús er 1.160 m2 og var upprunalega byggt árið 1965 en breytingar voru gerðar á húsnæðinu árið 1994.
Húsið er steinsteypt á tveimur hæðum, þ.e. fyrsta hæð ásamt kjallara. Þakrými er ofan á steyptri plötu yfir 1.hæð en þakið er sperruþak og klætt bárujárni.
Rífa þarf niður og fjarlægja allt húsnæðið ásamt því að grófjafna jörð ásamt því að fylla í grunn. Innifalið í niðurrifi er öll byggingin, það er helst botnplata, þakvirki, eftirstandandi lagnir og girðingar ásamt öllum öðrum búnaði sem kann að vera í byggingunni og á lóðinni í kringum bygginguna. Flokka skal úrgang og spilliefni samkvæmt byggingarreglugerð nr. 112/201 og flokkunarreglum viðurkennds móttökuaðila. Verktaki skal einnig fylgja fyrirmælum og ábendingum frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
Ekki er gert ráð fyrir asbesti í byggingunni en komi til þess að asbest finnist í húsnæðinu skal verktaki hætta vinnu við niðurrif og upplýsa eftirlitsmann verkkaupa og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Húsnæði verður ótengt við veitukerfi áður en verktaki kemur að niðurrifinu. Verkkaupi hefur lokað húsnæði og er það hluti af niðurrifi að fjarlægja lokanir af gluggum og hurðum.
Áætluð lok framkvæmdatíma: 30. okt 2026
Vettvangsskoðun: 11. ágúst 2026 kl. 13:00, á verkstað.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 16:00: þann 6. ágúst 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 26. ágúst 2026.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda