16342 Rafræn undirritunarlausn fyrir Reykjavíkurborg. Rammasamningur
F.h. Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Rafræn undirritunarlausn fyrir Reykjavíkurborg. Rammasamningur, EES útboð nr. 16342.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Skrifstofa fjármálaþjónustu og innkaupa, fyrir hönd Reykjavíkurborgar, óskar eftir tilboðum í rafræna undirritunarlausn og tengda þjónustu samkvæmt þessum útboðsgögnum. Kaupin taka til innleiðingar, reksturs, þjónustu og samþættinga ásamt rafrænum undirskriftum og innsiglun skjala samkvæmt nánari kröfum útboðsgagna.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00: þann 22. október 2026. Hægt er að breyta tungumáli vefsíðunnar með því að velja "Íslenska" í flettiglugganum neðst til vinstri.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 24. nóvember 2026.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda