16328 Vogabyggð 1. Strandstígur - Gatna- og stígagerð

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Vogabyggð 1. Strandstígur - Gatna- og stígagerð, útboð nr. 16328.

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 

Verkefnið felst í fullnaðarfrágangi yfirborðs á hlutasvæðum götu og göngusvæða í Drómundarvogi og Bátavogi ásamt göngustíg með fram sjó og milli lóða. Verkið felur m.a. í sér rif á núverandi yfirborði, jarðvegsskipti, fyllingar, grjóthleðsla, smíði á steyptum stoðvegg og stálrimlagirðingu, stígagerð, regnvatnslagnir, hellulögn, kantsteina, lýsingu, gróðursetningu, þökulögn, landmótun ásamt almennum yfirborðsfrágangi. 

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 11:00: þann 3. júlí 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 21. júlí 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda