16326 Forritun á vef Reykjavíkurborgar, rammasamningur, EES útboð

F.h. Þjónustu og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar er óskað er eftir tilboðum í: 

Forritun á vef Reykjavíkurborgar, rammasamningur, EES útboð nr. 16326

 Verkefnið felst í forritun, þróun, ráðgjöf og viðhald á vef Reykjavíkurborgar, reykjavik.is. Markmið samningsins er að tryggja áframhaldandi þróun, stöðugleika og framþróun vefsins sem er ein helsta þjónustugátt borgarinnar. Leitað er að samstarfsaðila með reynslumikið teymi sérfræðinga með þekkingu á veflausnum byggðum á Drupal og React, bæði í bakenda og framenda, auk samþættinga og tenginga við önnur kerfi.

Útboðið innifelur meðal annars: 

  • Forritun, þróun, ráðgjöf og viðhald á reykjavik.is
  • Þróun í Drupal og React, bæði í bakenda og framenda
  • Samþættingar, API tengingar, TMGMT og GitHub Actions umsjón
  • Áframhaldandi þróun, umbætur og nýþróun á vef borgarinnar

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is frá kl. 12:00 þann 16. júlí 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00, þann 25. ágúst 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda.