16319 Þjónusta við trjáfellingar í borgarlandinu. Rammasamingur, EES útboð

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Þjónusta við trjáfellingar í borgarlandinu. Rammasamingur, EES útboð nr. 16319.

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 

Markmið verkefnisins er að kaupa þjónustu sem tekur til hirðingar á skógarsvæðum og öðrum grónum svæðum Reykjavíkurborgar og öllu sem að því snýr þar með talið grisjun, útdrátt, kurlun, klifur, kjarrsögun og klippingar, stubbatæting og botnkurlun. Rammasamningurinn er til eins árs. Heimilt verður að framlengja samninginn þrisvar um eitt ár í senn..

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 10:00: þann 24. júní 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 20. ágúst 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda