16303 Vínlandsleið (Laxalón-Þúsöld) - Stígagerð
F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Vínlandsleið (Laxalón-Þúsöld) - Stígagerð, útboð nr. 16303.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið skal vinna samkvæmt verklýsingu í kafla 2 og 3 og öðrum meðfylgjandi teikningum. Stígagerð: Verkið felst í gerð um það bil 800 m langs hjólastígs á milli Vesturlandsvegar og Vínlandsleiðar frá Þúsöld að Laxalóni. Innifalið í verkinu er einnig gerð um 100 m langrar stígtengingar að núverandi stíg austan Vínlandsleiðar frá gönguþverun við Guðríðarstíg. Veitulagnir
Götulýsing: Verkið felur í sér að leggja ídráttarrör og jarðstrengi fyrir stíglýsingu ásamt því að reisa ljósastólpa, uppsetningu lampa og sjá um tengingar. Verkið skal vinna í samræmi við ákvæði gildandi reglugerða sem eiga við þessa framkvæmd og er verktaki að fullu ábyrgur fyrir því að þeim sé fylgt.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 11:00: þann 7. júlí 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 29. júlí 2026.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda