16286 Rammasamningur um bifreiðar fyrir Reykjavíkurborg, EES útboð

Óskað er eftir tilboðum í Rammasamningur um bifreiðar fyrir Reykjavíkurborg, EES útboð nr. 16286

Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar, fyrir hönd Reykjavíkurborgar, óskar eftir tilboðum í rammasamning um kaup og leigu bifreiða fyrir Reykjavíkurborg. Útboðinu er skipt í tvo hluta, kaup á bifreiðum og leigu á bifreiðum. Samningnum er ætlað að mæta almennum þörfum Reykjavíkurborgar vegna bifreiða í flokkum fólksbifreiða, hópbifreiða og vöruflutningabifreiða. Nánari kröfur um eiginleika, búnað, þjónustu, afhendingu, rekstur, umhverfisþætti og aðrar þarfir verða útfærðar í örútboði eða með skriflegum verðsamanburði.

Útboðið innifelur meðal annars: 

  • Hluti 1: Kaup á bifreiðum
  • Hluti 2: Leiga á bifreiðum
  •   Bifreiðar í flokkum M1, M2, M3, N1 og N
  •  Örútboð eða skriflegur verðsamanburður eftir áætluðu virði og þörfum kaupanda

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni http://utbod.reykjavik.is frá kl. 11:30 þann 9. september 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00, þann 13. október 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda.