16283 DAM hugbúnaðarkerfi - markaðskönnun
Reykjavíkurborg óskar eftir upplýsingum í:
DAM (Digital asset managment) lausn, markaðskönnun nr. 16283
Með markaðskönnun þessari er ætlað að kanna þjónustuframboð sem snýr að útfærslu og innleiðingu á DAM lausn fyrir vinnslu, hýsingu og miðlun á stafrænu myndefni borgarinnar.
Reykjavíkurborg er stærsta sveitarfélag landsins og framleiðir og hýsir fjölbreytt magn stafræns myndefnis í allri starfsemi sinni. Á öllum sviðum borgarinnar verða til ljósmyndir, myndbönd, teikningar, hljóðupptökur og ýmiss konar hönnunarefni, auk þess sem utanaðkomandi aðilar búa til slíkt efni fyrir borgina. Markmiðið innkaupa á grundvelli þessarar markaðskönnunar er að útfæra og innleiða DAM lausn sem uppfyllir væntingar og þarfir varðandi virkni, notendaviðmót, innleiðingartíma og kostnað.
Sjá upplýsingar hér, https://utbod.reykjavik.is/aspx/ProjectManage/1490