16256 Krókheysisgámar fyrir SORPU bs.
Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar fyrir hönd SORPA bs. óskar eftir tilboðum í Krókheysisgáma fyrir SORPU bs., EES útboð nr. 16256.
Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar hjá Reykjavíkurborg, fyrir hönd SORPU bs, auglýsir hér með eftir tilboðum í fimm tegundir krókheysgáma (lokaðir, opnir, háar og lágar auk og pressugáma) í samræmi við tæknilegar kröfur sem koma fram í útboðslýsingu.
Gámarnir verða að uppfylla staðla sem tilgreindir eru í útboðslýsingu (sbr. SS 3021, CE-merkingu, CSC/ISO).
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 10:00 þann 30. janúar 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:15, þann 3. mars 2026.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur en sjá má opnunarskýrslu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda