16255 Flutningabifreiðar með gámakrók fyrir SORPA bs.
Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar fyrir hönd SORPA bs. óskar eftir tilboðum í Flutningabifreiðar með gámakrók fyrir SORPA bs., EES útboð nr. 16255.
Óskað er eftir tilboðum í þrjár vörubifreiðar með gámakrók (e. hooklift) auk fylgibúnaðar, skv. þessum útboðsgögnum. Vörubifreiðunum er ætlað að flytja gámafleti byggðasamlagsins.
Kaupandi óskar einnig eftir tilboðum í þjónustu við vörubifreiðarnar, þ.m.t. reglulegar þjónustuskoðanir og viðgerðir vegna bilana sem falla undir ábyrgð, sbr. kafli 2.3 útboðsgagna.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 09:00 þann 30. janúar 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00, þann 3. mars 2026.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur en sjá má opnunarskýrslu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda