16237 Kaup á sorphirðubifreiðum fyrir Reykjavíkurborg. EES
F.h. Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Kaup á sorphirðubifreiðum fyrir Reykjavíkurborg. EES útboð nr. 16237.
Lauslegt yfirlit yfir verkið :
Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar f.h. Reykjavíkurborgar (hér eftir nefndur kaupandi) óskar eftir tilboðum í metan sorphirðubifreiðar samkvæmt þessum útboðsgögnum. Kaupandi mun kaupa að lágmarki tvær afturhlaðnar sorphirðubifreiðar til að tæma tunnur samkvæmt útboði þessu. Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00, 26. nóvember 2025. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 30. desember 2025.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2025