16229 Rammasamningur um vinnuföt fyrir Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar

Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar, fyrir hönd Menningar og íþróttasviðs Reykjavíkurborgar, óskar eftir aðilum til þátttöku í útboði á rammasamningi um starfsmannafatnað fyrir starfsfólk sviðsins. Samið verður við alla hæfa aðila á grundvelli þessa útboðs. Markmið útboðsins er að tryggja föst kjör og fastan afslátt af verðskrárverðum.

Ekki er um að ræða skuldbindingu um tiltekið magn innkaupa á samningstíma. Til upplýsinga er áætlað að heildarfjöldi starfsmanna í sundlaugum Reykjavíkur sé um 300 í föstu starfi og að nýráðningar að vori séu jafnan á bilinu 50 til 60. Heildarfjöldi starfsfólks í Fjölskyldu og húsdýragarði og Ylströnd er áætlaður um 70 og nýráðningar að vori eru jafnan um 40. Tölur eru einungis settar fram til viðmiðunar og fela ekki í sér skuldbindingu um tiltekið magn innkaupa.

Hámarksvirði samningsins er 100.000.000 með virðisaukaskatti. Samningurinn gildir í fjögur ár.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is frá kl. 14:00 þann 19. febrúar 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00, þann 24. mars 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2026.