16208 Raforkukaup Reykjavíkurborgar. EES
F.h. Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Raforkukaup Reykjavíkurborgar. EES útboð nr. 16208.
Lauslegt yfirlit yfir verkið :
Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar f.h. Reykjavíkurborgar (hér eftir nefndur kaupandi) óskar eftir tilboðum í raforku fyrir Reykjavíkurborg. Um er að ræða alla almenna raforkunotkun borgarinnar auk götulýsingar samkvæmt útboðsgögnum þessum.
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 14:00, 11. desember 2025. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 12. janúar 2026.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2026