16200 Rammasamningur um mötuneytisþjónustu SFS

f.h. Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir hæfum aðilum til að taka þátt í rammasamning um mötuneytisþjónustu SFS:

Rammasamningur um mötuneytisþjónustu SFS, EES útboð nr. 16200.

Rammasamningur þessi er um fulla mötuneytisþjónustu: Eldun, afhending og framreiðsla. Seljandi útvegar og greiðir fyrir allt hráefni sem þarf. Þar getur verið um að ræða þjónustu til lengri eða skemmri tíma. Ekki er ljóst hvaða magn verður keypt á grundvelli þessar útboðs, þar sem rammasamningar eru gerðir um tiltekna vöru eða þjónustu í tiltekinn tíma, án þess að magntölur séu þekktar. Rammasamningurinn felur ekki í sér loforð um viðskipti. 

Í dag eru um 50 leikskólar og um 10 grunnskólar sem eru með aðkeypta mötuneytisþjónustu.

Áætluð innkaup innan samnings eru talin um 2.200 milljónir kr. án vsk. á ársgrundvelli.

Um er að ræða rammasamning sem byggir á lögum  um opinber innkaup nr. 120/2016. Samningurinn gildir í fjögur ár frá fyrsta skóladegi 2027. 

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 11:00, þann 21. ágúst 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 6. október 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda