16069 Kaup á langarmavél fyrir SORPA bs. EES útboð

Kaup á langarmavél fyrir SORPA bs. EES útboð nr. 16069

Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar (áðurnefnd Innkaupaskrifstofa), f.h. SORPU bs. (hér eftir nefndur kaupandi) óskar eftir tilboðum í kaup á vinnuvél samkvæmt þessum útboðsgögnum. Um er að ræða almennt útboð þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni:  http://utbod.reykjavik.is - frá kl. 11:30  þann 4. október 2024. 

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 5. nóvember 2024.