16000 - Hverfið mitt 2024 – Vestur

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Hverfið mitt 2024 – Vestur, útboð nr. 16000

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 
Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum verkefnið Hverfið mitt 2023 í vesturhluta Reykjavíkurborgar. Helstu verkliðir eru jarðvinna, Raflagnir, hellulögn, malbik, hjólastæði og þökulögn.

Helstu magntölur eru: 

• Gröftur                 500    m3  

• Fylling                  110   m3 

• Gróðurmold          330   m3 

• Hellulögn               50   m2 

• Malbik                  100   m2 

• Þökulögn              160   m2 

• Raflagnir                90   m 

• Hjólastæði                4   stk.

Verklok: 1. október 2024. 

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 16:30 þann 22. apríl 2024.    Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:15 þann 8. maí 2024.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2024