15998 Hverfið mitt 2024 – Austur – Grafarvogur, Grafarholt og Úlfarsárdalur,

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Hverfið mitt 2024 – Austur – Grafarvogur, Grafarholt og Úlfarsárdalur, útboð nr. 15998

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 

Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum Hverfið mitt 2024 í austurhluta Reykjavíkurborgar. Verkefnin eru fjölbreytt og eru helstu verkliðir gröftur, fylling, æfingartæki, þökulögn og gróðursetning. 

Helstu magntölur eru: 

• Gröftur                      91  m3  
• Fylling                    395  m3 
• Jarðvegsdúkur         646  m2 
• Þökulögn              1.000  m2 
• Steinefni/salli       1.450  m2 
• Bakkaplöntur          560  stk. 
• Holuplöntur            495  stk. 
• Æfingartæki                7  stk. 

Verklok: 1. október 2024. 

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 12:00 þann 23. apríl 2024.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:15 þann 7. maí 2024.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2024