15975 Kaup á sorphirðubifreiðum fyrir Reykjavíkurborg, EES útboð

Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar f.h. Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboðum í: 

Kaup á sorphirðubifreiðum fyrir Reykjavíkurborg, EES útboð nr. 15975

Almennt um verkið: 
Um er að ræða almennt útboð þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð. 

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 11:00 þann 18. júlí 2024, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is  Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað. 

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 4. september 2024.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2024