15974 Kafarabíll

Kafarabíll, Verðfyrirspurn nr. 15974

Innkaupaskrifstofa Reykjavíkurborgar (hér eftir nefnd Innkaupaskrifstofa), f.h. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (hér eftir nefndur kaupandi) óskar eftir tilboðum í fjórhjóladrifin sendiferðabíl af týpu L2H2 með yfirbyggingu beint frá framleiðanda  samkvæmt þessum verðfyrirspurnargögnum. Um er að ræða verðfyrirspurn sbr. 22. gr. innkaupareglna Reykjavíkurborgar.

Verðfyrirspurnargögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 9:30 þann 2. apríl 2024. 

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 16. apríl 2024.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2024