15971 Kaup á djúpgámum,  EES útboð

Innkaupaskrifstofa Reykjavíkurborgar, f.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar og Umhverfissviðs Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í djúpgáma í útboðinu  Kaup á djúpgámum,  EES útboð nr. 15971. 

Um er að ræða almennt útboð þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð.

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00 þann 20. mars 2024, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is  

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað. 

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 30. apríl 2024.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni 

https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2024