15857 Rammasamningur um tölvu- og netbúnað

Innkaupaskrifstofa Reykjavíkurborgar óskar eftir aðilum til þátttöku í Rammasamningi um tölvu- og netbúnað. Um er að ræða rammasamning sem byggir á lögum um opinber innkaup nr. 120/2016. Samningurinn gildir í fjögur ár frá því að samningur er kominn á

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 11:00 þann 28. febrúar 2024. 

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 3. apríl 2024.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni 

https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2024