Aðgangur að gögnum frá umhverfis- og skipulagssviði

Teikning af pappírsbunka.

Þegar óskað er eftir aðgangi að gögnum frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar á  grundvelli upplýsingalaga nr. 140/2012 eða stjórnsýslulaga nr. 37/1993, þarf að fylla út beiðni á þar til gerðu eyðublaði í gegnum Mínar síður hjá Reykjavíkurborg.  Ef óskað er eftir gögnum frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur er það gert á vef Heilbrigðiseftirlitsins.
 

Hver getur óskað eftir gögnum?

Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að opinberum fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál hjá Reykjavíkurborg.

Afgreiðslutími beiðna

  • Reykjavíkurborg tekur ákvörðun um það hvort orðið verður við beiðni um aðgang að gögnum svo fljótt sem verða má.
  • Hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá móttöku hennar verður málsaðila gefin skýring frá ástæðum tafa og hvenær ákvörðunar sé að vænta.
  • Dragist afgreiðsla máls óhæfilega er heimilt að kæra það til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.

Hvað þarf að koma fram?

Til að unnt sé að afgreiða beiðni um aðgang að gögnum þarf að koma skýrt fram hvaða gögn óskað er eftir eða hvaða mál beiðnin varðar. Nægilega skýrar upplýsingar gera starfsmönnum borgarinnar kleift að afmarka beiðnina og afgreiða hana hraðar og með skilvirkari hætti.

Beiðni vísað frá

Reykjavíkurborg er heimilt að vísa beiðni frá ef ekki er talið mögulegt á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga að afmarka hana við tiltekin gögn eða tiltekið mál. Áður en til þess kemur verður málsaðila leiðbeint og gefið færi á að afmarka beiðni sína nánar.

Höfnun á beiðni

  • Reykjavíkurborg er heimilt  að hafna beiðni um aðgang að gögnum ef meðferð hennar tæki svo mikinn tíma eða krefðist svo mikillar vinnu að ekki telst af þeim sökum fært að verða við henni eða ef sterkar vísbendingar eru um að beiðni sé sett fram í ólögmætum tilgangi. 
  • Reykjavíkurborg er einnig heimilt að hafna beiðni ef gögn eru undanþegin upplýsingarétti, svo sem ef gögn teljast vinnugögn eða vegna einka- og almannahagsmuna.
  • Sé beiðni um gögn lögð fram á grundvelli upplýsingalaga er málsaðila heimilt að kæra ákvörðun um synjun beiðni um aðgang að gögnum og synjun á beiðni um að afhenda gögn á því formi sem óskað er til úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Skal kæra berast nefndinni innan 30 daga frá því að málsaðila var tilkynnt um ákvörðunina.
  • Sé beiðni lögð fram á grundvelli stjórnsýslulaga má kæra synjun eða takmörkun til þess stjórnvalds sem ákvörðun í málinu verður kærð til. Skal kæra borin fram innan 14 daga frá því málsaðila var tilkynnt um ákvörðunina.