No translated content text
Tónlistarskólinn á Klébergi
Tónlistarskóli
Kollagrund 2
116 Reykjavík
![""](/sites/default/files/styles/original_4k/public/myndir_stadir/klebergsskoli_0.jpg?itok=tMZ23fop)
Sækja um tónlistarnám
Þú getur sótt um tónlistarnám við Tónlistarskólann á Klébergi á rafrænan hátt með því að fylla út umsókn hér.
![](/sites/default/files/hanna_illustrations/tonlist.png)
Um Tónlistarskólann á Klébergi
Tónlistarskólinn á Klébergi (TK) var stofnaður sumarið 1994 og hóf starfsemi sína þá um haustið. Ákveðið var að skólastjóri Klébergsskóla yrði einnig skólastjóri í Tónlistarskólanum á Klébergi. Áður hafði tónlistarskólinn í Mosfellsbæ (TM) og Lúðrasveit Mosfellsbæjar (LM) séð um tónlistarkennslu á svæðinu. Tónlistarskólinn var fyrst sjálfstæð eining starfrækt innan Klébergsskóla en haustið 2016 varð tónlistarskólinn hluti af sameinaðri stofnun Klébergsskóla. Þar starfa nú 4 tónlistarkennarar og kenna þeir á mismunandi hljóðfæri, tré- og málmblásturshljóðfæri, ásláttarhljóðfæri, trommur, gítar, bassa, ukulele hljómborð og píanó o.fl.
Skólastjóri er Sigrún Anna Ólafsdóttir
Tónlistarkennarar:
- Ásrún Inga Kondrup (píanó og hljómborð)
- Hallvarður Ásgeirsson (gítar, rafgítar, rafbassi, ukulele)
- Sveinn Þórður Birgisson (málm- og tréblásturshljóðfæri, hljómborð, ásláttarhljóðfæri og trommur)