Tillaga að starfsleyfi

Umhverfis- og skipulagssvið, skrifstofa borgarlandsins - Hólmsheiði

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur, skrifstofu borgarlandsins fyrir nýja starfsemi á losunarstað á Hólmsheiði. Um er að ræða móttöku á úrgangi til endurvinnslu.

Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi. Lagt er til að gildistími verði 12 ár.

Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á tímabilinu 19. apríl til 18. maí 2023. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.