Vesturmiðstöð þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar - brenna við Ægisíðu

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Vesturmiðstöð, þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna þrettándabrennu á brennupúða við Ægisíðu. Um er að ræða nýja tímabundna starfsemi  Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir brennur og leiðbeinandi reglur fyrir áramótabrennur.  Lagt er til að gildistími verði 6. janúar 2024 frá kl. 18 til 22. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 7. nóvember til 6. desember 2023. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.