Tillaga að starfsleyfi - Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar, móttaka á úrgangi að Sævarhöfða 6-10

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar, skrifstofu framkvæmda og viðhalds vegna nýrrar starfsemi. Um er að ræða móttöku á úrgangi eða millilager fyrir mengað efni á lóð Sævarhöfða 6-10. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og starfsleyfisskilyrði fyrir Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar, skrifstofu framkvæmda og viðhalds vegna móttökustöðvar fyrir úrgang/millilager mengaðs efnis að Sævarhöfða 6-10. Lagt er til að gildistími verði 3 ár frá samþykkt leyfis. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 22. mars til 19. apríl 2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is