Tillaga að starfsleyfi - Stjörnuegg hf., Saltvík Kjalarnesi

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Stjörnuegg hf. (kt. 630191-1579) í Saltvík, Kjalarnesi, reit C (L125744, mhl.30). Um er að ræða eldi varpfugla fyrir eggjaframleiðslu, allt að 23.500 fuglar. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir alifugla- og svínabú. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 27.12.2023 til 24.01.2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is. Vakin er athygli á að Stjörnuegg hf. sóttu þann 5.12.2023 um bráðabirgðaheimild fyrir starfseminni á meðan hún er án starfsleyfis, í samræmi við 7. gr. a. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Umhverfisstofnun er með umsóknina til meðferðar.