Tillaga að starfsleyfi - Móttaka á úrgangi til endurvinnslu og olíugeymir til eigin nota í Gufunesi
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Moldarbland-Gæðamold ehf. í Gufunesi vegna breytingar á starfsleyfi, breytingin felst í því að rekstraraðila verður heimilt að endurvinna steinefni og að vera með olíugeymi til eigin nota .Um er að ræða móttöku á úrgangi til endurvinnslu og olíugeymi til eigin nota. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og starfsleyfisskilyrði fyrir Moldarblönduna-Gæðamold ehf. kt. 510291-1749, fyrir endurvinnslu á úrgangi í Gufunesi og olíugeymi til eigin nota. Lagt er til að gildistími verði til 30. október 2026. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/heilbrigdiseftirlit/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 16.05 til 13.06.2025. Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.