Tillaga að starfsleyfi - Hjallastefnan að Bústaðaveg 9
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að tímabundnu starfsleyfi fyrir Hjallastefnuna ehf. að Bústaðavegi 9 vegna nýrrar starfsemi. Um er að ræða grunnskóla. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir grunnskóla. Lagt er til að gildistími verði til 31. desember 2026 til samræmis við undanþágu Umhverfis- orku og loftslagsráðuneytis frá ákvæðum í 29. gr í reglugerð nr. 903/2024 um hollustuhætti, sjá nánar í gögnum málsins. Í undanþágunni kemur fram að starfsleyfið yrði bundið tveimur skilyrðum - 1. að fjöldi barna verði ekki fleiri en 15 í húsnæðinu hverju sinni og 2. ekki er heimilt að bjóða upp á mat í húsnæðinu. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 9. maí til . 6. júní 2025. Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.