Deiliskipulag

Deiliskipulag er nánari útfærsla á aðalskipulagi fyrir afmarkað svæði eða reit. Í deiliskipulagi er kveðið á um byggðamynstur, húsagerðir, landmótun, starfsemi, lóðarmörk o.fl. Deiliskipulag á við í þéttbýli og dreifbýli, fyrir stór og smá hverfi, gatnamannvirki, hafnarmannvirki, útivistarsvæði, hljóðmanir, snjóflóðavarnargarða og fleira. Í deiliskipulagi eru skipulagsskilmálar fyrir útgáfu byggingar- og framkvæmdaleyfa.

Skipulagssjá

Í Skipulagssjá Reykjavíkurborgar má nálgast samþykkt deiliskipulag og aðalskipulag fyrir borgina. Þjónustan er öllum opin og gjaldfrjáls.

Fyrsta skref

Í upphafi vinnu að gerð deiliskipulagstillögu skal sveitarstjórn taka saman lýsingu á skipulagsverkefninu, leita umsagnar um skipulagslýsinguna og kynna hana almenningi.

Hver ber ábyrgð?

Sveitarstjórn ber ábyrgð á og annast gerð deiliskipulags. Í deiliskipulagi koma fram skipulagsskilmálar fyrir uppbyggingu og framkvæmdir, svo sem um þéttleika byggðar, húsagerðir, lóðastærðir, lóðamörk, staðsetningu húsa á lóðum, bílastæði og landmótun.