Starfsþróun

Starfsþróun er lykilþáttur í faglegu starfi og umbótamenningu skóla- og frístundastarfs. Hún felur í sér markvissa þróun sem styður starfsfólk í að efla þekkingu sína, færni og faglegt sjálfstæði í takt við þarfir barna, starfsumhverfis og samfélags. Með fjölbreyttum tækifærum til náms, samstarfs og ígrundunar er markmiðið að styrkja fagmennsku, stuðla að þróun starfs og auka gæði skóla- og frístundastarfs í anda Menntastefnu Reykjavíkurborgar.
 
 
Upplýsingar um starfsþróun
""
Fjölbreyttar leiðir í starfsþróun fyrir leikskóla.
""
Hlaðborð af fræðslu, lærdómssamfélag, menningarmót og margt fleira.
""
Fyrir frístund
Námskeið, ráðstefnur, menntabúðir og margt fleira.

Yfirlitsdagatal starfsþróunar

Hér getur þú skoðað starfsþróunartilboð skóla- og frístundasviðs.

 

Torgið

Torgið – fræðslukerfi Reykjavíkurborgar heldur utan um fræðslu og þjálfun starfsfólks, þar á meðal skyldufræðslu, nýliðaþjálfun, stjórnendaþjálfun og alla aðra fræðslu sem stendur starfsfólki til boða. 
Í kerfinu getur starfsfólk sótt stafræna fræðslu, til dæmis á formi myndbanda og texta, eða skráð sig á rauntímafræðslu hvort sem það er fjarnámskeið eða staðnámskeið. 
Öll þátttaka í gegnum Torgið er skráð í fræðslusögu starfsfólks.
 
Torgið, lógó

Samstarf við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Samstarfssamningur er í gildi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands (MVS) um starfsþróun starfsfólk NýMennt. Nýsköpunar- og menntasamfélag starfar á MVS og vinnur náið með Mixtúru, sköpunar- og tækniveri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Fræðslustundir og menntabúðir eru dæmi um sameiginlega viðburði. NýMennt sinnir fjölbreyttum verkefnum á öllum skólastigum meðal annars starfsþróun. Auk þess sinnir deildin nýsköpunar- og frumkvöðlamennt í skólastarfi. NýMennt sér einnig um keppnir og menntaverkefni eins og Nýsköpunarkeppni grunnskólanna, Lego League og Stækkaðu framtíðina.
Starfsstaðir geta óskað eftir fræðslu og ráðgjöf frá Nýmennt með því að hafa samband við starfsthrounmvs@hi.is
Teikning af fólki að horfa á skjái.