Skipasund 77
Kynning fyrir hagsmunaaðila
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. júní 2023 var lögð fram tillaga um að byggja bílskúr og vinnustofu úr timbri á steyptum sökkli, mhl.02, í norðvestur horni lóðar nr. 77 við Skipasund, samkvæmt uppdr. Eggerts Guðmundssonar BFI, dags. 27. febrúar 2023.
Með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:
Húseigendum að Skipasundi 75 og 79.
Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá skipulagsfulltrúa, verkefnisstjóri er Sigríður Lára Gunnarsdóttir.
Kynning hefst þann 23. júní 2023 og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsfulltrúa skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 21. júlí 2023.
Umhverfis- og skipulagssvið notar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem settar eru fram vegna athugasemda við skipulag, s.s. kennitölu, nafn og netfang í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna borgarbúa. Að auglýsingarferli loknu eru gögn varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga hjá Reykjavíkurborg má finna hér.
Vakin er athygli á því að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og birtast meðal annars nöfn borgarbúa í fundargerðum skipulags- og samgönguráðs á netinu.