Lindargata 50

Grenndarkynning á deiliskipulagi

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. febrúar 2023 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis vegna lóðarinnar nr. 50 við Lindargötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að hækka hluta þaks á mhl. 03 (bakhús) og tengja við eystri hlið þaks á mhl. 2 þannig að úr verði garðskáli á þaki mhl 3, og setja opin stiga austast í port sem þjónar sem flóttaleið frá samkomusal á 2. hæð, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdrætti VA arkitekta, dags. 9. janúar 2023.

Með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Frakkastíg 5, Hverfisgötu 63, 65, 65a og 67 og Lindargötu 52 og 54.

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá skipulagsfulltrúa, verkefnisstjóri er Sigríður Lára Gunnarsdóttir.

Kynning hefst þann 20. mars 2023 og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsfulltrúa skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 17. maí 2023.

Umhverfis- og skipulagssvið notar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem settar eru fram vegna athugasemda við skipulag, s.s. kennitölu, nafn og netfang í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna borgarbúa. Að auglýsingarferli loknu eru gögn varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga hjá Reykjavíkurborg má finna hér.

Vakin er athygli á því að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og birtast meðal annars nöfn borgarbúa í fundargerðum skipulags- og samgönguráðs á netinu.