Hjónavígslur í Ráðhúsi
Hægt er að leigja rými fyrir hjónavígslur í Ráðhúsi Reykjavíkur. Um er að ræða tvo sali á þriðju hæð í norðurhluta Ráðhússins, Turn og Tjarnarbúð ásamt rými í Tjarnarsal.
Rými fyrir hjónavígslur
Rými fyrir hjónavígslur er til leigu mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga, föstudaga og laugardaga milli kl. 10:00-15:00. Miðað er við að athöfnin taki að hámarki eina klukkustund og fari fram standandi.
Fulltrúi viðburðastjórnar aðstoðar leigutaka við uppsetningu rýmis, dúkar og kertastjakar eru innifalin í leigu. Leiguverð er 32.500 kr. auk vsk. á virkum dögum en 43.500 kr. auk vsk. á laugardögum.
Skipulagning
Leigutaki annast alla skipulagningu, aflar nauðsynlegra leyfa og útvegar vígsluaðila og votta. Fulltrúi viðburðastjórnar er á staðnum á meðan á athöfn stendur. Sé athöfn haldin í Turni eða Tjarnarbúð skulu gestir ekki vera fleiri en 20. Í Tjarnarsal skuli gestir ekki vera fleiri en 50.
Aðgengi er tryggt fyrir öll. Leyfilegt er að skála að athöfn lokinni, ekki er leyft að vera með hrísgrjón, sápukúlur, glitpappír (konfetti) og þess háttar.
Viðburðastjórn Ráðhúss Reykjavíkur er tengiliður fyrir leigu á sölum Ráðhúss fyrir hjónavígslur, og heldur utan um umsóknir og afgreiðslu þeirra.
Umsókn
Vinsamlegast fyllið út umsókn og látið fylgja ítarlega lýsingu á skipulagi athafnarinnar.