Unglingastig

Teikning af hjónum með ungling á milli sín.

Verkfærakista Jafnréttisskólans fyrir unglingastig inniheldur ýmis konar fræðslu, verkefni, kveikjur, myndbönd, bækur og fleira fyrir starfsfólk skóla og aðstandendur barna til að nýta sér í kennslu eða heima fyrir.

Verkfærakistur Jafnréttskólans miða að því að framfylgja menntastefnu Reykjavíkurborgar og byggja á þema UNESCO um alhliða kynfræðslu. 

Verkfærakista unglingastigs

Verkefni og kennsluleiðbeiningar

Öryggi og ofbeldi

Kynfræðsla

Jafnrétti og kynjafræði

  • Samtvinnun eru kennsluleiðbeiningar í tilefni dags mannréttinda barna 2024. 
  • Að greina lagatexta er verkefni til að vekja umhugsun um skilaboð í lögum. 
  • Konur - ekki hlutir er verkefni um birtingarmyndir kvenna í auglýsingum. 
  • The male gaze er verkefni um birtingarmyndir kvenna í kvikmyndum. 
  • Stalking for love er verkefni um birtingarmyndir ásts í kvikmyndum. 
  • Ögraðu kynjakerfinu er verkefni til að hvetja ungmenni að prófa að ögra stöðluðum hugmyndum um kyn. 
  • Kynjafræði fyrir byrjendur er efni ætlað framhaldsskólanemum en er tilvalið til að styrkja eigin þekkingu í kynjafræði. Hægt er að aðlaga efnið að unglingastigi. 
  • Sexhyrnd hugsun um jafnrétti eru kennsluleiðbeiningar til að efla skilning á hugtökum sem tengjast kvenréttindum og jafnrétti. 
  • Sjálfsbærni - Verkefnabanki inniheldur ýmis verkefni og fræðslu um sjálfbærni á hinum ýmsu sviðum samfélagsins. 
  • Taktu eitt skref áfram er verkefni um forréttindi, hindranir og fordómar sem fólk í ólíkum stöðum samfélagsins nýtur eða mætir. 
  • Margt er um að velja eru kennsluleiðbeiningar og verkefni um atvinnulífið, skólakerfið og sjálfsþekkingu. 
  • Stefnan sett eru kennsluleiðbeiningar um kynjaskiptan vinnumarkað, jafnrétti kynjanna og skólakerfið.
  • Kvenhetjur og karlhetjur eru kennsluleiðbeiningar frá Kompás um jafnrétti kynjanna, mismunun og útlendingahatur. 
  • Leiðin til Jafnréttislands eru kennsluleiðbeiningar frá Kompás um jafnrétti kynjanna, menntun, mismunun og útlendingahaturs. 
  • Vinna og börn eru kennsluleiðbeiningar frá Kompás um félagsleg réttindi, jafnrétti kynjanna, mismunun og útlendingahatur. 

Klám

Bækur og kennsluefni

Kynfræðsla

  • Fávitar er kynfræðslubók um helstu spurningar ungmenna um kynlíf og samskipti.
  • Kvár er heimildarmyndasaga um að vera kynsegin. 
  • Litla bókin um blæðingar fer yfir alls kyns sem tengist tíðahringnum og túrvörum. 

Upplýsingaefni

Jafnrétti og kynjafræði

  • Á ferð um samfélagið er kennslubók í þjóðfélagsfræði sem kemur inn á jafnrétti kynja og önnur samfélagstengdum viðfangsefnum. 
  • Kynungabók er fræðsluefni til að veita raunsæja mynd af stöðu kynjanna í samfélaginu. 

 

Myndbönd og þættir

Á íslensku

Á ensku

Á norrænu máli

  • Kynþroskinn eru norskir þættir um kynþroskann og allt sem honum fylgir. Þættirnir eru stuttir og mikilvægt er að velja þætti sem henta hverju sinni. Þeir geta verið góðar kveikjur að frekari umræðum eða verkefnavinnu. 

Vefsíður

  • Kynþroski stúlkna er vefur hjúkrunarfræðinga um kynþroska. 

  • Youmo er sænsk fræðslusíða um kynþroska og samskipti ungmenna.

  • Kynheilbrigði er vefur Heilsuveru um ýmist sem tengist kynþroska, kynhneigð og kynheilbrigði.

  • Klámspjall er síða Stígamóta með ýmis fræðslu og upplýsingum um hvernig hægt er að nálgast umræður um klám. 

  • Pussypedia er síða um allt sem viðkemur píkum. 

  • Vefur 112.is er vefur lögreglunnar þar sem má finna ýmist fræðsluefni um ofbeldi.

  • Hvað er endómetríósa? er upplýsingasíða Endó-samtakana um endómetríósu.

  • Hvað er intersex? er heimasíða Intersex Ísland þar sem finna má ýmis fróðleik.

  • Netvís er miðstöð um félagslegt netöryggi og miðlalæsi (áður þekkt sem SAFT). Þar má finna efni fyrir börn, starfsfólk og aðstandendur barna.

  • Stopp ofbeldi er vefur sem inniheldur ýmist aldursskipt fræðsluefni um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi. 

  • Sterkari út í lífið er vefur um sjálfsmynd barna og ungmenna.

  • Sjúk ást er er forvarnarátak á vegum Stígamóta um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna og einkenni heilbrigða sambanda. 

  • Keep it real online er síða um netöryggi og online grooming.