Fyrir viðburðahaldara
Viðburðir með veitingasölu á Menningarnótt
Þeir sem ætla að vera með veitingasölu á sínum viðburði á Menningarnótt skulu tryggja að fylgja settum reglum.
Sækja þarf um starfsleyfi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar til þess að vera með veitingasölu.
Ef áfengisveitingar verða á svæðinu þarf að sækja um tímabundið áfengisleyfi hjá Sýslumanninum á Höfuðborgarsvæðinu.
Staðir sem eru nú þegar með útiveitingaleyfi þurfa ekki að sækja um frekara leyfi. Á Menningarnótt er útibar heimilaður á útiveitingarsvæði.
- Enginn getur verið með útibar nema vera með útiveitingaleyfi
- Útibar þarf að vera staðsettur innan þess svæðis sem útiveitingaleyfið nær yfir
- Áfenga drykki sem veittir eru á útibar má ekki bera út af útiveitingasvæðinu
- Útibarir ættu að vera hugsaðir til að auðvelda afgreiðslu en ekki til að stuðla að unglingadrykkju
Viðburðir án veitinga á Menningarnótt
Þeir sem ætla að vera með viðburð án veitinga þurfa einnig að fylgja reglum.
Ef viðburður er innandyra þarf húsnæði að vera með starfsleyfi fyrir samkomuhús.
Sótt er um það hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, en einnig þarf að sækja um tækifærisleyfi hjá Sýslumanninum á Höfuðborgarsvæðinu.
Ef viðburður er utandyra þarf ekki að sækja um frekara leyfi.