Menningarnótt - Aðgengi

Aðgengi

Menningarnótt er stærsta hátíð Reykjavíkurborgar þar sem öll eru velkomin. 

Hluti miðborgarinnar verður lokaður allri bílaumferð til tryggja öryggi gangandi vegfarenda, og verða engar undantekninga gefnar á því.  En leitast er við, eftir bestu getu, að tryggja aðgengi allra að hátíðarsvæðinu.

Hjólastólapallar verða fyrir framan sviðið á tónleikunum í Hljómskálagarði og á Arnarhóli til að tryggja aðgengi allra á tónleikunum.

Bílastæði fyrir fatlað fólk

Bílastæði fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum: 

  • Fyrir framan Skúlagötu 6, sérstakst svæði sem eingöngu verður nýtt undir bílastæði fyrir P merkta bíla. 
  • Við Tækniskólann, hluti stæðanna verður nýttur undir P merkst stæði.
  • Í eftirfarandi bílastæðahúsum eru sérmerkt bílastæði fyrir fatlað fólk.

     

    • Bilakjallari Ráðhúss Reykjavíkur, frá kl. 07.00 - 11.00 og 16.00 - 00.00.
    • Vesturgötu 7.
    • Vitatorgi, Lindargötu aðgengi frá Hverfistgötu.
    • Stjörnuporti, Laugavegi 94, frá kl. 15:00 - 00:00.
    • Hörpu, frá kl. 14:00 - 21.00. Frá kl. 21.00 verður útakstur eingöngu leyfilegur um Koplagötu og vestureftir Geirsgötu.

Skynrými

Skynrými fyrir fólk með skynúrvinnsluvanda verður staðsett í safnaðarheimili Fríkirkjunnar í Reykjavík við Laufásveg 13. Skynrýmið verður opið milli 15:00 til 20:00.

Pant akstursþjónusta fatlaðs fólks

Hægt er að panta akstur á vefnum eða í síma 540 2727.

Akstur er frá kl. 07:30–01:00
Seinasta ferð er kl. 01:00

  • Almennur opnunartími á laugardögum er kl. 10:00–14:00
  • Fyrir kl. 10:00 og eftir kl. 14:00 er aðeins hægt að panta stakar ferðir, afpanta ferðir og fá svör við brýnum erindum.
  • Hægt er að bóka ferð með tveggja tíma fyrirvara á Menningarnótt eins og vani er.
  • Farþegar eru vinsamlegast beðnir um að bóka ferðir með fyrirvara til að auðvelda skipulagningu akstursins.

Akstursþjónustan stöðvar á eftirfarandi stöðum til þess að skila af sér og taka á móti farþegum:

  • Skólavörðuholti – bílastæði við Hallgrímskirkju
  • N1 Hringbraut – bílastæði við N1
  • Túngötu - bílastæði á horni við Suðurgötu
  • Sjávarútvegsráðuneyti – bílastæði á Skúlagötu 4
  • EKKI er stöðvað við Ráðhúsið

Viðbúið er að einhver seinkun kunni að verða sökum umferðar. Farþegar eru beðnir um að sýna þolinmæði og skilning gagnvart því.

Salernisaðstaða

Salerni fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:

  • Við Arnarhól (til hliðar við bílastæðahús Seðlabankans)
  • Á Miðbakka
  • Í Hljómskálagarði
  • Á bílastæði við Tækniskólann
  • Hverfisgötu 23 (við Lýðveldisgarð)
  • Í Ráðhúsinu – opið til kl. 19:00
  • Í Hörpu – opið til kl. 22:00
  • Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi – opið til kl. 22:00

Kort af götulokunum og þjónustu við fatlað fólk á Menningarnótt 2024.