Meindýravarnir
Hlutverk meindýravarna borgarinnar er að halda meindýrum í lágmarki með eyðingu meindýra, upplýsingagjöf og fyrirbyggjandi starfsemi.
Óvelkomnar mýs, rottur, pöddur, fuglar og jafnvel minkar og refir láta stundum vita af sér á borgarlandi og jafnvel inni á heimilum fólks og vinnustöðum. Nauðsynlegt þykir að veita þjónustu á þessu sviði upp að vissu marki. Í mörgum tilfellum er um að ræða mál sem bregðast þarf skjótt við. Talsverð hætta og heilsuógn getur stafað af óvelkomnum gestum af þessu tagi og er fólk sem í slíku lendir oft óttaslegið, ráðalaust og veit ekki hvert skal snúa sér.
Hverjir geta haft samband?
Allir borgarbúar geta leitað til Meindýravarna Reykjavíkurborgar og óskað eftir þjónustu fái þeir rottu eða mús í heimsókn. Meindýravarnir losa íbúa við óværuna og koma málum í réttan farveg svo unnt sé að fyrirbyggja með sem bestum hætti slíka heimsókn aftur. Iðulega láta dýrin vita af sér í görðum og fyrir utan heimili. Þá er gott að geta leitað til meindýravarna borgarinnar sem kemur á staðinn og fyrirbyggir eins og kostur er að dýrin nái að koma sér fyrir.
Meindýravarnir Reykjavíkurborgar sinna öllum málum sem koma upp á borgarlandi eins og almenningsgörðum, við götur og göngustíga, við Reykjavíkurtjörn og við strandlengjuna.
Ytri byggðum borgarinnar er sinnt af kostgæfni. Þar er aðallega fugli, mink, og ref haldið í skefjum vegna ágangs þeirra á varplönd ýmissa fuglategunda. Meindýravarnir sinna einnig þeim stofnunum sem tilheyra Reykjavíkurborg eins og leik- og grunnskólum, félagsþjónustunni, sundlaugum, ráðhúsinu og íþróttamannvirkjum.
Ef upp koma mál sem Reykjavíkurborg er óheimilt að taka að sér, til dæmis silfurskottur á heimilum er þeim málum beint í einkageirann.
Dauð dýr
Óumflýjanlega drepast dýr í hinu iðandi borgarlífi, ýmist af völdum annarra dýra, manna, farartækja, mannvirkja og jafnvel sjúkdóma, og geta hræ þeirra valdið óhug borgarbúa. Fuglar af ýmsum stærðum og gerðum og kettir eru mest að fara sér að voða en endrum og sinnum þarf að sinna fátíðari skepnum eins og minkum og jafnvel selum. Meindýravarnir Reykjavíkurborgar sjá um að fjarlægja þau eins fljótt og mögulegt er.
Utan vinnutíma Meindýravarna sinnir Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu og Dýraþjónusta Reykjavíkur slíkum útköllum.
Meindýravarnir starfa náið með Félagsþjónustu Reykjavíkurborgar, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Dýraþjónustu Reykjavíkur og Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu.
Hafa samband
Meindýravarnir Reykjavíkurborgar þjónusta borgarbúa alla virka daga frá 08.00 - 20.00. Fjórir meindýraeyðar starfa fyrir borgina.
-
Ólafur Ingi Heiðarsson rekstrarstjóri, sími 693 9620
-
Ómar, sími 693 9621
-
Sólon, sími 693 9622
-
Bjarki, sími 693 9623