Mannauðsstefna

Reykjavíkurborg er einn vinnustaður í öllum sínum fjölbreytileika og hefur sett sér mannauðsstefnu til ársins 2025. Framtíðarsýn Reykjavíkurborgar miðar að því að starfsemin einkennist af fagmennsku og framsækni. Reykjavíkurborg ætlar að vera lifandi og skemmtilegur vinnustaður með sterkt aðdráttarafl fyrir hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk á öllum aldri sem vinnur í þágu borgarbúa.

Leiðarljós mannauðsstefnu

Fjögur leiðarljós munu móta og stýra starfsemi mannauðsmála til næstu ára. Þau eru mannvæn, samræmd, traust og snjöll.

Mannvæn

  • Reykjavíkurborg mætir síbreytilegum þörfum vinnustaðar og starfsfólks. Við sýnum ábyrgð og lágmörkum sóun til að bæta þjónustu og samfélagið í borginni. Lögð er öll áhersla á að starfsfólk hafi jafna stöðu og fái jöfn tækifæri.

Samræmd

  • Reykjavíkurborg er einn vinnustaður í öllum sínum fjölbreytileika. Slíkt birtist í samræmdu verklagi og úrvinnslu mannauðsmála hjá borginni, öflugri liðsheild og stuttum boðleiðum.

Traust

  • Reykjavíkurborg hefur heilsu starfsfólks og vellíðan í fyrirrúmi sem skilar sér í aukinni ánægju og bættri þjónustu til borgarbúa. Starfsmönnum er skapað öruggt umhverfi og gagnkvæm virðing er til staðar í öllum samskiptum.

Snjöll

  • Reykjavíkurborg er framsækinn vinnustaður sem hvetur til þverfaglegrar starfsþróunar. Með því að horfa til framtíðar vinnur starfsfólk borgarinnar í sameiningu að því að takast á við áskoranir og grípa tækifæri þegar þau gefast.

Með leiðarljósin fjögur í huga göngum við sem einn vinnustaður til móts við framtíðina með áherslu á þverfaglegt samstarf og stuttar boðleiðir. Þannig verður Reykjavíkurborg mannvænn, samræmdur, traustur og snjall vinnustaður sem einkennist af fjölbreytni, sterkri menningu, sveigjanleika og samheldni. 

Mannauðsstefna Reykjavíkurborgar til 2025

Æskileg staða árið 2025 er að starfsemi Reykjavíkurborgar einkennist af fagmennsku, framsækni og nýtingu tækniþróunar. Þannig verði borgin lifandi og skemmtilegur vinnustaður.